Öruggur sigur Fram á Breiðabliki

Ólafur Kristjánsson þjálfari Breiðabliks. stækka

Ólafur Kristjánsson þjálfari Breiðabliks. mbl.is

mbl.is Stefán Stefánsson, ste@mbl.is

Fram sýndi sínar allra bestu hliðar og unnu með mjög öguðum leik auðveldan 3:1 sigur á Breiðabliki í Laugardalnum í kvöld.

Áður en fjórar mínútur voru liðnar höfðu Blikar átt hörkuskot í slá og stöng en síðan gerðist ekki neitt.  Fram tók völdin og Hjálmar Þórarinsson skoraði á 9. mínútu, Almarr Ormarson á 23. og síðan Jón Guðni  Fjóluson mínútu fyrir leikhlé.  Blikar náðu aðeins að komast inní leikinn með því að skipta inná ferskum fótum og Guðmundur Kristjánsson minnkaði muninn í 3:1 á 71. mínútu en þar við sat.   

Þar með varð Breiðablik að víkja úr efsta sæti deildarnnar því Eyjamenn unnu í dag en Fram er enn um miðja deild.

Lið Fram: Hannes Þór Halldórsson, Kristján Hauksson, Halldór Hermann Jónsson, Daði Guðmundsson, Jón Gunnar Eysteinsson, Samuel Tillen, Hjálmar Þórarinsson, Almarr Ormarson, Jón Guðni Fjóluson, Tómas Leifsson, Josep Tillen.

Varamenn: Ögmundur Kristinsson, Kristinn Ingi Halldórsson, Hlynur Atli Magnússon, Orri Gunnarsson, Alexander Veigar Þórarinsson, Guðmundur Magnússon, Jón Orri Ólafsson.

Lið Breiðabliks:  Ingvar Þór Kale, Árni Kristinn Gunnarsson, Finnur Orri Margeirsson, Elfar Freyr Helgason, Kári Ársælsson, Kristinn Steindórsson, Alfreð Finnbogason, Olgeir Sigurgeirsson, Guðmundur Kristjánsson, Jökull Elísabetarson, Arnór Sveinn Aðalsteinsson.

Varamenn: Sigmar Ingi Sigurðarson, Haukur Baldvinsson, Rannver Sigurjónsson, Guðmundur Pétursson, Elvar Páll Sigurðsson, Tómas Óli Garðarsson, Andri Rafn Yeoman.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Íþróttir, Pepsi-deildin — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí


finnur.is