„Töluðum um að laga varnarleikinn“

Frá leiknum í kvöld. stækka

Frá leiknum í kvöld. mbl.is/Jakob Fannar

Ólafur Kristjánsson þjálfari Breiðabliks var ánægður með sína menn eftir leikinn gegn Val í Pepsí deildinni í kvöld. Hann mátti líka vera það því Blikar unnu 5:0.

„Við spiluðum varnarleikinn illa í fyrri hálfleik en við fengum engu að síður færi sem við nýttum ekki. Valsararnir voru vel inni í leiknum en við töluðum um það í hálfleik að reyna að laga varnarleikinn. Flestir halda sjálfsagt að við höfum verið að reyna að laga sóknarleikinn en varnarleikurinn og þéttleikinn í liðinu var lykillinn að því að við gátum spilað eins og við gerðum í síðari hálfleik. Þá unnum við boltann á betri stöðum og áttum styttra í markið hjá þeim heldur en í fyrri hálfleik,“ sagði Ólafur í samtali við mbl.is en að loknum fyrri hálfleik var Breiðablik yfir 1:0.

Ítarlega er fjallað um leikinn í íþróttablaði Morgunblaðsins í fyrramálið. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Pepsi-deildin — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí


finnur.is