Ólafur Örn: Ekki hræddur ef við höldum sama dampi
Stefán Stefánsson, ste@mbl.is „Við erum bara að spá í að vera fyrir ofan þessi tvö lið sem eru fyrir neðan okkur í augnablikinu en við náum að halda sama dampi og við gerðum í dag er ég ekkert hræddur við framhaldið, þá koma stigin,“ sagði Ólafur Örn Bjarnason spilandi þjálfari Grindavíkur eftir 3:0 sigur á Fram í Grindavík í kvöld.
Ólafur Örn kom heim úr atvinnumennsku í Svíþjóð og virðist strax hafa áhrif á gengið, sem er ekki sem best. „Það er ekkert hlaupið að því að því að komast í gang. Þegar við erum í baráttu eins og í dag er alltaf ákveðið stress í gangi og þú getur hvorki talaði þig út úr því eða unnið bara einn leik. Það verður að vera svolítið ferli og við höfum spilað ágætlega síðustu leiki og vonandi höldum við dampi.“
Þjálfarinn gerði strax breytingar. „Mér hefur fundist við full-varkárir á heimavelli svo við reyndum nú að vera grimmir frammi, setja þannig pressu á Framara með því að koma boltanum fram á okkur sterku sóknarmenn. Það skapar ákveðin óróa en við vorum 2:0 yfir í hálfleik og vissum að við þyrftum bara að standa af okkur pressu Framara fyrstu 15 til 20 mínúturnar eftir hlé, þá myndi opnast fyrir okkur og það gerðist. Ef við hefðum síðan verið aðeins rólegri frammi, hefðum við getað refsað þeim ennþá meira.“






