KR skoraði fjögur á 11 mínútum gegn Val

KR-ingar hafa gætur á Diarmuid O'Carroll, framherja Vals, í leiknum í kvöld. stækka

KR-ingar hafa gætur á Diarmuid O'Carroll, framherja Vals, í leiknum í kvöld. mbl.is/Árni Sæberg

KR-ingar skoruðu fjögur mörk á 10 mínútum í seinni hálfleik og unnu í kjölfarið sannfærandi sigur á Val, 4:1,  í 17. umferð úrvalsdeildar karla í fótbolta, Pepsideildarinnar, á Vodafonevellinum að Hlíðarenda í kvöld.

Staðan var 0:0 í 55 mínútur en þá opnuðust flóðgáttirnar. Kjartan Henry Finnbogason og Mark Rutgers skoruðu eftir sendingar Óskars Arnar Haukssonar, sem síðan bætti við tveimur mörkum og staðan var alltí einu orðin 4:0. Jón Vilhelm Ákason minnkaði muninn fyrir Val. 

KR-ingar eru þar með komnir með 28 stig og farnir að narta í hælana á  efstu liðunum. Þeir eiga að auki til góða frestaðan leik gegn Fylki í Árbænum á fimmtudag.

Lið Vals: Kjartan Sturluson - Stefán Eggertsson, Atli Sveinn Þórarinsson, Martin Pedersen, Þórir Guðjónsson, Rúnar Már Sigurjónsson, Ian Jeffs, Haukur Páll Sigurðsson, Jón Vilhelm Ákason, Diarmuid O'Carroll, Arnar Sveinn Geirsson.
Varamenn: Ásgeir Þór Magnússon, Baldur I. Aðalsteinsson, Matthías Guðmundsson, Einar Marteinsson, Guðmundur Steinn Hafsteinsson, Magnús Örn Þórsson, Fannar Örn Kolbeinsson.

Lið KR: Lars Ivar Moldskred - Skúli Jón Friðgeirsson, Grétar S. Sigurðarson, Mark rutgers, Jordao Diogo - Baldur Sigurðsson, Bjarni Guðjónsson, Viktor Bjarki Arnarsson - Kjartan Henry Finnbogason, Björgólfur Takefusa, Óskar Örn Hauksson.
Varamenn: Þórður Ingason, Dofri Snorrason, Egill Jónsson, Auðunn Örn Gylfason, Hróar Sigurðsson, Gunnar Örn Jónsson, Guðjón Baldvinsson.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Pepsi-deildin — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí


finnur.is