Breiðabliki var spáð þriðja sætinu

Blikar fagna titlinum á Stjörnuvellinum í dag.
Blikar fagna titlinum á Stjörnuvellinum í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Breiðablik, sem í dag varð Íslandsmeistari í fyrsta skipti í sögu félagins, var spáð þriðja sætinu í árlegri spá þjálfara og fyrirliða fyrir Íslandsmótið. KR-ingum var þar spáð titlinum.

Blikar, undir stjórn Ólafs Kristjánssonar, hömpuðu titlinum í fyrsta skipti í sögu félagsins og nú segja gárungarnir; Hvað er grænt sem vinnur á haustin en áður var það; Hvað er grænt sem fellur á haustin.

Spá þjálfara og fyrirliðanna fyrir mótið var eftirfarandi:

1. KR

2. FH

3. Breiðablik

4. Keflavík

5. Fram

6. Valur

7. Fylkir

8. Grindavík

9. Stjarnan

10. ÍBV

11. Selfoss

12. Haukar

Lokastaðan í Pepsi-deildinni varð þessi:

1. Breiðablik

2. FH

3. ÍBV

4. KR

5. Fram

6. Keflavík

7. Valur

8. Stjarnan

9. Fylkir

10.Grindavík

11.Haukar

12.Selfoss

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert