Víkingsvöllur snævi þakinn

Víkingsvöllur eins og hann leit út í morgun. stækka

Víkingsvöllur eins og hann leit út í morgun. mbl.is/Kristinn

Útlit fyrir að veðurfar geti sett upphaf Íslandsmóts karla í knattspyrnu úr skorðum en keppni þar á að hefjast með leik Íslandsmeistara Breiðabliks og KR á morgun.

Hinir fimm leikirnir í fyrstu umferð fara fram á mánudag og þar á meðal er nýliðaslagur Víkings R. og Þórs. Snjóað hefur á höfuðborgarsvæðinu í morgun og myndin sem fylgir þessari frétt er af heimavelli Víkinga í Fossvoginum eins og hann lítur út í dag. Hvort völlurinn verður leikfær á mánudagskvöld verður hins vegar að koma í ljós.

Þegar hefur verið ákveðið að flytja einn leik inn í knattspyrnuhöll en það er leikur Fylkis og Grindavíkur sem fram fer í Kórnum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Íþróttir, Pepsi-deildin — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí


finnur.is