Þorvaldur: Valsmenn görguðu mikið

Þorvaldur Örlygsson, þjálfari Fram.
Þorvaldur Örlygsson, þjálfari Fram. mbl.is/Ómar

„Mér fannst Valsmenn spila eins og ég átti von á, þeir sitja  aftur og kýla boltanum mikið fram en við vorum viðbúnir því“, sagði Þorvaldur Örlygsson þjálfari Fram eftir 1:0 tap fyrir Val í Pepsi-deild karla að Hlíðarenda í kvöld.


„Valsmenn görguðu mikið til að reyna fá spjöld og annað en við tókum bara á því.  Ég skerpti á sókninni í lokin en við vorum með þrjá leikmenn á miðjunni og þrjá frammi, alveg eins og síðasta leik og undanförnum leikjum“,  bætti Þorvaldur við en Fram hefur aðeins náð einu stigi úr fyrstu fimm leikjum mótsins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert