Einnar mínútu þögn á öllum leikjum

Topplið KR fær Breiðablik í heimsókn í kvöld.
Topplið KR fær Breiðablik í heimsókn í kvöld. mbl.is

Í dag hefst seinni helmingur Pepsideildar karla í knattspyrnu með fimm leikjum. Einnar mínútu þögn verður fyrir hvern leikjanna af virðingu við fórnarlömb hinna hörmulegu voðaverka í Noregi á föstudaginn.

Leikirnir sem fara fram í dag eru eftirtaldir:

Þór - Víkingur R., kl. 17
Fram - ÍBV, kl. 18
Grindavík - Fylkir, kl. 19:15
Stjarnan - Keflavík, kl. 19:15
KR - Breiðablik, kl. 20

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert