Íþróttir
|
Pepsi-deildin
| Morgunblaðið
| 17.1.2012
| 7:32
Líklegt að Halldór Orri fái tilboð
Líklegt þykir að Stjörnumaðurinn Halldór Orri Björnsson fái samningstilboð frá norska úrvalsdeildarliðinu Sandnes Ulf en hann þótti standa sig vel með liðinu á æfingamóti í Noregi um síðustu helgi og var þjálfari liðsins, Asle Andersen, ánægður með það sem hann sá til Halldórs.
„Mér líkar vel við leikstíl Sandnes Ulf og ég vona að ég hafi sýnt nóg til að fá samning. Steinþór Freyr Þorsteinsson er góður vinur minn og það væri gott að fá að spila með honum aftur,“ sagði Halldór Orri við norska blaðið Aftenbladet.
Nánar er fjallað um málið í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






