Hallbera samdi við Piteå

Hallbera Guðný Gísladóttir í leik með Val gegn KR. stækka

Hallbera Guðný Gísladóttir í leik með Val gegn KR. mbl.is/Ernir Eyjólfsson

Landsliðskonan Hallbera Guðný Gísladóttir, sem leikið hefur með Val undanfarin ár, hefur gert eins árs samning við sænska úrvalsdeildarliðið Piteå. Nokkur félög í Svíþjóð voru á höttunum eftir Hallberu en hún ákvað að taka tilboði frá Piteå og heldur hún utan á næstu dögum.

,,Ég er ánægð að þessi mál séu komin á hreint. Ég taldi mig þurfa að fá nýja áskorun og það verður spennandi að spila í sænsku úrvalsdeildinni sem er mjög sterk deild,“ sagði Hallbera við mbl.is en nánar verður rætt við hana í Morgunblaðinu á morgun.

Piteå hafnaði í 10. sæti af 12 liðum í úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð en forráðamenn liðsins hafa sett stefnuna á að gera betur á næstu leiktíð.

Hallbera er 26 ára gömul frá Akranesi og lék með ÍA áður en hún gekk til liðs við Val. Hún leikur í stöðu vinstri bakvarðar eða kantmanns og átti fast sæti í íslenska landsliðinu á síðasta ári.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Pepsi-deildin — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí


finnur.is