Ameobi á leið til Grindavíkur

Tomi Ameobi í leik með BÍ/Bolungarvík gegn Haukum. stækka

Tomi Ameobi í leik með BÍ/Bolungarvík gegn Haukum. mbl.is/Ómar

Enski sóknarmaðurinn Tomi Ameobi mun að öllum líkindum semja við Grindvíkinga um að leika með þeim í úrvalsdeildinni í knattspyrnu í sumar, en umboðsmaður hans sagði á Twitter í kvöld að væntanlega yrði gengið frá því á morgun.

Ameobi lék með BÍ/Bolungarvík í 1. deildinni síðasta sumar, undir stjórn Guðjóns Þórðarsonar, núverandi þjálfara Grindvíkinga. Hann var markahæsti leikmaður liðsins og sá fjórði markahæsti í deildinni með 11 mörk í 22 leikjum. Ameobi er 23 ára gamall og hefur leikið með Scunthorpe, Doncaster, Grimsby og Mansfield í neðri deildunum í Englandi og með utandeildaliðunum Forest Green Rovers og Whitley Bay.

Ameobi er bróðir Shola og Sammy, leikmanna úrvalsdeildarliðsins Newcastle. Hann er fæddur í Newcastle og lék með unglingaliði félagsins til 17 ára aldurs og var síðan í röðum Leeds í tvö ár en fékk ekki tækifæri með aðalliðinu þar.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Pepsi-deildin — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí


finnur.is