Íþróttir
|
Pepsi-deildin
| Morgunblaðið
| 19.1.2012
| 7:37
| Uppfært
8.2.2012
14:16
Kjartan kominn til Coventry
Sóknarmaðurinn Kjartan Henry Finnbogason úr meistaraliði KR í knattspyrnunni hélt til Englands í gær þar sem hann verður til skoðunar hjá enska B-deildarliðinu Coventry fram á sunnudag.
„Coventry setti sig í samband við okkur í gær og fékk leyfi hjá okkur til að fá Kjartan út til æfinga. Það stendur til að hann verði úti fram á sunnudag,“ sagði Rúnar Kristinsson, þjálfari Íslands- og bikarmeistara KR, við Morgunblaðið í gær.
Coventry situr á botni B-deildarinnar en liðið fékk góðan liðstyrk fyrr í vikunni þegar Eyjamaðurinn Hermann Hreiðarsson samdi við félagið út leiktíðina og er honum ætlað að stoppa í götin í varnarleik liðsins.
Nánar um málið í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






