Íþróttir
|
Pepsi-deildin
| mbl
| 19.1.2012
| 14:53
Mawejje farinn frá Eyjamönnum
Úgandamaðurinn Tonny Mawejje leikur ekki áfram með Eyjamönnum í Pepsi-deildinni í knattspyrnu en suður-afríska liðið Golden Arrows hefur fengið miðjumanninn sterka lánaðan frá ÍBV og hefur kauprétt á honum.
Mawejje hefur leikið stórt hlutverk með ÍBV undanfarin þrjú ár og hans verður því sárt saknað með Eyjamönnum sem enduðu í þriðja sæti í Pepsi-deildinni á síðustu leiktíð. Mawejje, sem hefur leikið á fjórða tug landsleikja fyrir Úganda, spilaði 64 leiki með ÍBV í efstu deild og skoraði í þeim 5 mörk.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






