Spennt fyrir því að spila í þessari sterku deild

Hallbera Guðný Gísladóttir í leik á móti Fylki. stækka

Hallbera Guðný Gísladóttir í leik á móti Fylki. mbl.is/Kristinn

Hallbera Guðný Gísladóttir, landsliðskona í knattspyrnu og leikmaður Vals, hefur gert eins árs samning við sænska úrvalsdeildarliðið Piteå. Hallbera, sem er 26 ára gömul og leikur í stöðu vinstri bakvarðar eða kantmanns, var í viðræðum við fleiri félög í Svíþjóð, til að mynda Örebro og meistaraliðið Malmö, en ákvað að lokum að taka tilboði frá Piteå.

„Ég er ánægð að þessi mál skuli vera komin á hreint. Ég ræddi við fleiri félög en á endanum ákvað ég að taka tilboðinu frá Piteå. Ég ræddi við Malmö en þar sem ég hefði verið ólögleg með liðinu í Meistaradeildinni vildi liðið fá mig í ágúst en það gekk ekki upp. Ég ákvað því að taka slaginn með Piteå og er bara spennt fyrir því að spila í þessari sterku deild. Ég hef stefnt að því leynt og ljóst að komast út í atvinnumennsku og nú er það að verða að veruleika. Mér fannst ég vera komin á hálfgerða endastöð hér heima og þurfa á nýrri áskorun að halda,“ sagði Hallbera við Morgunblaðið í gær.

Hallbera, sem er uppalin hjá ÍA, hefur leikið með Val undanfarin ár. Hún hefur spilað samtals 110 leiki í efstu deild og hefur skorað í þeim 32 mörk. Þá hefur hún átt fast sæti í íslenska landsliðinu og hefur spilað 23 leiki með því.

Nánar er rætt við Hallberu í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Pepsi-deildin — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí


finnur.is