Þórarinn til skoðunar hjá Silkeborg
Þórarinn Ingi Valdimarsson leikmaður ÍBV og U21 árs landsliðsins í knattspyrnu fer til skoðunar hjá danska liðinu Silkeborg á næstu dögum að því er fram kemur á vef Eyjafrétta.
Þórarinn hefur átt góðu gengi að fagna með Eyjamönnum og eftir Íslandsmótið í haust var hann valinn efnilegasti leikmaður Pepsi-deildarinnar.
„Ég er alveg rólegur, fer bara þarna út og reyni að gera mitt besta og fá góða reynslu. Það er líka alltaf gaman að sjá hvar maður stendur í samanburði við leikmenn frá öðrum löndum. Draumurinn er auðvitað að fara í atvinnumennskuna og það væri gott að byrja í deild eins og þeirri dönsku. En þetta kemur allt í ljós og eins og ég segi, þá er ég alveg rólegur,“ segir Þórarinn í viðtali við Eyjafréttir.
Silkeborg er í sjötta sæti dönsku úrvalsdeildarinnar.






