Albert með þrennu í sigri FH

Albert Brynjar hefur raðað inn mörkum fyrir Fylki síðustu ár en er nú kominn til ... stækka

Albert Brynjar hefur raðað inn mörkum fyrir Fylki síðustu ár en er nú kominn til FH. mbl.is/Eggert

Albert Brynjar Ingason, sóknarmaðurinn sem gekk í raðir FH frá Fylki í vetur, skoraði þrennu í 5:0-sigri liðsins á Keflavík á Fótbolta.net-mótinu í dag. Öll mörkin komu á fyrsta hálftíma leiksins. Breiðablik og ÍA mættust einnig í dag og gerðu markalaust jafntefli.

Keflavík missti mann af velli strax á 4. mínútu þegar Ásgrímur Rúnarsson fékk rautt spjald og átti erfitt uppdráttar eftir það. Það varð þó aftur jafnt í liðum 20 mínútum fyrir leikslok þegar Emil Pálsson var rekinn af velli.

Breiðablik og ÍA hafa fjögur stig í A-riðli, FH er með þrjú stig og Keflavík ekkert.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Pepsi-deildin — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí


finnur.is