Íþróttir
|
Pepsi-deildin
| mbl
| 21.1.2012
| 14:49
| Uppfært
22.1.2012
20:42
Fjolla Shala til Breiðabliks
Knattspyrnukonan efnilega Fjolla Shala er gengin í raðir Breiðabliks frá Fylki þar sem hún hefur leikið frá árinu 2008. Hún samdi við Kópavogsfélagið til þriggja ára.
Fjolla, sem er uppalin hjá Leikni R., verður 19 ára á árinu en á þegar að baki 51 leik í efstu deild og bikarkeppnum, og hefur skorað í þeim sjö mörk. Þá á hún að baki 12 landsleiki með U17 landsliði Íslands og 13 leiki með U19.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






