Íþróttir
|
Pepsi-deildin
| mbl
| 21.1.2012
| 20:51
| Uppfært
22.1.2012
18:02
Valur og KR sigruðu (myndskeið)
Valur sigraði Fjölni, 5:0, og KR vann Þrótt R., 2:0, á Reykjavíkurmóti kvenna í knattspyrnu í dag en báðir leikirnir fóru fram í Egilshöllinni.
Valur, Fylkir, KR og Fjölnir eru með 3 stig hvert í mótinu en Þróttur er án stiga.
Elín Metta Jensen skoraði þrjú marka Vals og Kristín Bjarnadóttir tvö en Valur var 1:0 yfir í hálfleik gegn Fjölni.
Anna Garðarsdóttir og Freyja Viðarsdóttir skoruðu fyrir KR gegn Þrótti.
Leikirnir voru sýndir beint á SportTV og þar má jafnframt sjá mörkin úr leikjunum á meðfylgjandi slóðum:
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






