Jafntefli Fylkis og Fjölnis (myndskeið)

Jóhann Þórhallsson skoraði fallegt mark í kvöld. stækka

Jóhann Þórhallsson skoraði fallegt mark í kvöld. mbl.is/Ómar

Fylkir og Fjölnir skildu jöfn, 2:2, á Reykjavíkurmóti karla í knattspyrnu þegar liðin mættust í Egilshöllinni í kvöld en þetta var fyrsti leikur beggja liðanna í mótinu.

Ásmundur Arnarsson stýrði þar með Fylki í fyrsta skipti í mótsleik gegn Fjölnismönnum sem hann hafði þjálfað um árabil þar til hann tók við Árbæjarliðinu í haust.

Fylkir virtist stefna í þægilegan sigur en Jóhann Þórhallsson og Magnús Þórir Matthíasson skoruðu í fyrri hálfleik 2:0. Bergsveinn Ólafsson náði hinsvegar að skora tvívegis fyrir Fjölnispilta seint í leiknum og kom seinna markið á 89. mínútu.

Leikurinn var sýndur beint á SportTV og á síðu stöðvarinnar má sjá mörkin úr leiknum.

Mörkin úr Fylkir - Fjölnir.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Pepsi-deildin — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí


finnur.is