Íþróttir
|
Pepsi-deildin
| mbl
| 23.1.2012
| 23:24
| Uppfært
24.1.2012
14:37
Sveinbjörn til Framara
Sveinbjörn Jónasson gekk í dag til liðs við Framara og mun leika með liðinu á komandi leiktíð. Sveinbjörn kemur til Framara frá Þrótti Reykjavík en hann skoraði grimmt fyrir liðið á síðasta tímabili.
Sveinbjörn, sem er 26 ára gamall, skoraði 27 mörk í 26 leikjum með Þrótturum í deild og bikar á síðasta tímabili og hann skoraði til að mynda þrennu þegar Þróttur sló Fram út í bikarkeppninni. Hann varð markakóngur 1. deildarinnar með 19 mörk í 22 leikjum.
Sveinbjörn, sem hefur einnið leikið með Hugin á Seyðisfirði, Fjarðabyggð og Grindavík, mætir á sína fyrstu æfingu með Frömurum á morgun að því er fram kemur á vef félagsins.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






