Íþróttir
|
Pepsi-deildin
| mbl
| 24.1.2012
| 23:40
Garðar með tvö gegn Grindavík
Stjarnan sigraði Grindavík, 3:1, þegar liðin mættust í Kórnum í Kópavogi í kvöld en leikurinn var liður í Fótbolta.net mótinu, nokkurs konar Faxaflóamóti í meistaraflokki karla þar sem átta af tólf liðum efstu deildar taka þátt.
Garðar Jóhannsson, markakóngur Pepsi-deildarinnar í fyrra, skoraði tvívegis fyrir Stjörnuna á fyrstu 20 mínútunum. Pape Mamadou Faye minnkaði muninn fyrir Grindavík en Sindri Már Sigurþórsson innsiglaði sigur Garðbæinga með marki á lokamínútunni.
Eftir tvær umferðir af þremur í B-riðlinum er Stjarnan með 4 stig, Grindavík 3, ÍBV 3 og Selfoss 1 stig.
Í A-riðlinum eru ÍA og Breiðablik með 4 stig, FH 3 en Keflavík er án stiga.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






