Íþróttir
|
Pepsi-deildin
| mbl
| 24.1.2012
| 18:16
Haraldur búinn að semja við Sarpsborg
Haraldur Björnsson markvörður úr Val er búinn að skrifa undir samning við norska B-deildarliðið Sarpsborg 08. Þetta er staðfest á vef félagsins í dag en Haraldur fór út til skoðunar hjá liðinu í haust ásamt Alberti Brynjari Ingasyni og Kjartani Ágústi Breiðdal.
Samningur Haraldar gildir út tímabilið 2014. Hann átti tvö ár eftir af samningi sínum við Valsmenn en Sarpsborg náði samkomulagi við Val um kaupverðið.
Haraldur stóð á milli stanganna hjá U21 árs liðinu í úrslitakeppni Evrópumótsins í Danmörku í sumar og var í kjölfarið valinn í A-landsliðshópinn.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






