Hjörtur skoraði í fyrsta leiknum
Hjörtur Júlíus Hjartarson, markaskorarinn gamalkunni frá Akranesi, var aðeins 9 mínútur að skora mark fyrir sitt nýja félag, Víking í Reykjavík, þegar liðið gerði jafntefli, 3:3, við Íslands- og bikarmeistara KR í Reykjavíkurmótinu í Egilshöllinni í kvöld.
Hjörtur, sem skoraði 15 mörk fyrir Skagamenn í 1. deildinni síðasta sumar og hefur gert 149 mörk á Íslandsmótinu í knattspyrnu á ferlinum, skipti yfir í Víking í vetur.
Jafnaldri hans, Helgi Sigurðsson, sem líka verður 38 ára á þessu ári, var einnig á meðal markaskorara Víkings í kvöld en hinn 17 ára gamli Viktor Jónsson skoraði eitt mark.
Óli Pétur Friðþjófsson, 17 ára KR-ingur, skoraði sitt fyrsta mark fyrir Vesturbæjarliðið og þeir Viktor Bjarki Arnarsson og Atli Sigurjónsson gerðu hin tvö. Atli kom til KR frá Þór í vetur.
Þá vann Leiknir R. öruggan sigur á ÍR, 3:0, í uppgjöri Breiðholtsliðanna í fyrri leik kvöldsins í Egilshöllinni. Óttar Bjarni Guðmundsson, Kristján Páll Jónsson og Andri Steinn Birgisson skoruðu mörk Leiknismanna en Andri kom til þeirra frá Keflavík í vetur.
Fram og Leiknir R. eru með 6 stig hvort eftir tvo leiki í A-riðlinum og þar stefnir í hreinan úrslitaleik þeirra á milli um hvort þeirra vinnur riðilinn og leikur til úrslita í mótinu. Víkingur R. er með 4 stig eftir 3 leiki, KR eitt stig eftir tvo leiki og ÍR er án stiga og marka eftir þrjá leiki.






