Ameobi og Gambíumaður sömdu við Grindavík

Tomi Ameobi skrifaði undir samning við Grindavík í dag. stækka

Tomi Ameobi skrifaði undir samning við Grindavík í dag. mbl.is/Ómar Óskarsson

Tveir leikmenn gengu í raðir úrvalsdeildarliðs Grindavíkur í knattspyrnu í dag. Annars vegar skrifaði Matarr Jobe, 20 ára gamall landsliðsmaður frá Gambíu, undir samning við Suðurnesjaliðið og hins vegar Englendingurinn Tomi Ameobi.

Gambíumaðurinn gerði þriggja ára samning en kom til Valsmanna fyrir einu og hálfu ári. Hann leikur í stöðu miðvarðar og var fyrirliði U17 ára liðs Gambíu þegar það varð Afríkumeistari árið 2009. Jobe lék hluta af síðasta tímabili sem lánsmaður með Víkingum í Ólafsvík í 1. deildinni.

Ameobi gerði tveggja ára samning en framherjinn lék með BÍ/Bolungarvík á síðustu leiktíð og vakti athygli fyrir vasklega framgöngu. Hann skoraði 12 mörk í 25 leikjum með liðinu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Pepsi-deildin — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí


finnur.is