Mörkin í Reykjavíkurmótinu (myndskeið)

Atli Sigurjónsson og Andri Steinn Birgisson skoruðu báðir í gærkvöld, en þeir eru komnir í ... stækka

Atli Sigurjónsson og Andri Steinn Birgisson skoruðu báðir í gærkvöld, en þeir eru komnir í KR og Leikni. mbl.is/Skapti

Níu mörk voru skoruð í tveimur leikjum í Reykjavíkurmótinu í knattspyrnu í gærkvöldi, eins og áður hefur komið fram og nú má sjá þau öll á síðu SportTV, sem sýndi báða leikina í beinni útsendingu.

Leiknir R. vann ÍR 3:0 og Víkingur R. og KR gerðu jafntefli, 3:3. Mörg lagleg mörk litu þarna dagsins ljós eins og sjá má með því að smella á tenglana hér fyrir neðan.

Hjörtur Júlíus Hjartarson, Viktor Jónsson og Helgi Sigurðsson skoruðu fyrir Víking en Viktor Bjarki Arnarsson, Óli Pétur Friðþjófsson og Atli Sigurjónsson fyrir KR.

Óttar Bjarni Guðmundsson, Kristján Páll Jónsson og Andri Steinn Birgisson skoruðu fyrir Leikni gegn ÍR.

Mörkin úr Víkingur R. - KR.

Mörkin úr Leiknir R. - ÍR.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Pepsi-deildin — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí


finnur.is