Íþróttir
|
Pepsi-deildin
| mbl
| 30.1.2012
| 16:27
Ingólfur frá Val til Lyngby
Ingólfur Sigurðsson, knattspyrnumaður úr Val, er í þann veginn að ganga endanlega frá samningum við danska úrvalsdeildarfélagið Lyngby. Þetta staðfesti Ólafur Garðarsson umboðsmaður við Fótbolta.net fyrir stundu.
Ingólfur hefur að undanförnu æft hjá Lyngby en á undan dvaldi hann hjá Celtic í Skotlandi.
Ingólfur er 18 ára og hóf síðasta tímabil með KR, en þá hafði hann snúið aftur til Vesturbæjarfélagsins frá Heerenveen í Hollandi eftir hálfs árs dvöl þar. Hann lék einn leik í úrvalsdeildinni í upphafi móts en skipti síðan yfir í Val og spilaði 12 leiki með Hlíðarendaliðinu í deildinni.
Lyngby er næstneðst í dönsku úrvalsdeildinni þegar 18 umferðir hafa verið leiknar af 33 og er sex stigum frá því að komast úr fallsæti.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






