Jóhann til liðs við Keflvíkinga

Jóhann Ragnar Benediktsson í leik með Fjarðabyggð. stækka

Jóhann Ragnar Benediktsson í leik með Fjarðabyggð. mbl.is/Eggert

Jóhann Ragnar Benediktsson, knattspyrnumaður frá Eskifirði, hefur skrifað undir tveggja ára samning við úrvalsdeildarlið Keflavíkur. Frá þessu er greint á vef Keflvíkinga.

Jóhann er 31 árs miðjumaður eða vinstri kantmaður/bakvörður og kemur aftur á fornar slóðir því hann spilaði með Keflvíkingum árin 1999-2002. Þá lék hann 43 leiki með liðinu í efstu deild og skoraði eitt mark. Áður hafði hann leikið í þrjú ár með KVA, liði Eskfirðinga og Reyðfirðinga, og frá Keflavík fór hann til Grindavíkur og lék þar tímabilið 2003.

Jóhann tók sér frí frá fótbolta í tæp þrjú ár en hefur síðan leikið með Fjarðabyggð frá 2006 og átti stóran þátt í uppgangi liðsins sem náði lengst í fjórða sæti 1. deildar 2009. Það sumar skoraði hann 10 mörk í 1. deildinni. Samtals hefur Jóhann spilað 197 deildaleiki með KVA, Keflavík, Grindavík og Fjarðabyggð og þá lék hann á sínum tíma með U19 ára landsliði Íslands.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Pepsi-deildin — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí


finnur.is