Íþróttir
|
Pepsi-deildin
| mbl
| 1.2.2012
| 17:54
Kristinn Freyr til Valsmanna
Valsmenn fengu í dag til liðs við sig Kristin Frey Sigurðsson, knattspyrnumann úr Fjölni, og sömdu við hann til fjögurra ára. Frá þessu er greint á vef Vals.
Kristinn er 22 ára gamall og hefur leikið á miðjunni hjá Fjölni undanfarin ár en hann er uppalinn hjá Grafarvogsfélaginu. Hann lék 14 leiki með því í úrvalsdeildinni tímabilið 2009 og hefur síðan spilað 37 leiki og skorað 5 mörk með Fjölnismönnum í 1. deildinni undanfarin tvö ár. Þá á hann að baki 6 leliki með yngri landsliðum Íslands.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






