Fylkir og Þróttur í undanúrslit
Fylkir og Þróttur R. eru bæði komin í undanúrslit Reykjavíkurmótsins í knattspyrnu karla en þau skildu jöfn, 1:1, í Egilshöllinni í kvöld.
Árni Freyr Guðnason kom Fylki yfir á 36. mínútu en Aron Bjarnason jafnaði fyrir Þrótt á 54. mínútu.
Staðan í riðlinum breyttist mikið fyrir leikinn þegar Fjölnir missti sín stig í mótinu fyrir að tefla fram ólöglegum leikmanni. Fjölnir hafði gert jafntefli við bæði Fylki og Þrótt en skráist nú hafa tapað báðum leikjum 0:3.
Fylkir fékk því 7 stig í riðlinum og Þróttur 5. Valsmenn eru með eitt stig og Fjölnir ekkert fyrir leik liðanna sem er nýhafinn.
Þróttarar mæta nánast örugglega Frömurum sem vinna A-riðilinn nema furðuúrslit líti dagsins ljós í lokaumferð hans. Fylkismenn mæta þá annaðhvort Leikni R. eða KR.






