Íþróttir
|
Pepsi-deildin
| mbl
| 2.2.2012
| 23:08
Valur endaði á stórsigri
Valur vann stórsigur á Fjölni, 5:0, í síðasta leiknum í B-riðli Reykjavíkurmóts karla í knattspyrnu sem fram fór í Egilshöllinni í kvöld.
Úrslitin í riðlinum voru þegar ráðin því Fylkir með 7 stig og Þróttur með 5 voru komin í undanúrslitin. Valur endaði með 4 stig en Fjölnir án stiga. Riðillinn breyttist þó talsvert því jafnteflisleikir Fjölnis gegn Fylki og Þrótti urðu að 0:3 ósigrum þar sem Grafarvogsliðið var með ólöglegan leikmann í þeim.
Hafsteinn Briem kom Val yfir á 36. mínútu í kvöld og staðan var 1:0 í hálfleik. Andri Fannar Stefánsson skoraði á 57. mínútu og Haukur Páll Sigurðsson með hörkuskalla á 78. mínútu. Í blálokin skoruðu síðan Þórir Guðjónsson, eftir mikinn einleik, og Indriði Áki Þorláksson og innsigluðu sigurinn.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






