Íþróttir
|
Pepsi-deildin
| mbl
| 3.2.2012
| 14:38
| Uppfært
18:51
Tveir Danir til reynslu hjá ÍBV
Tveir danskir knattspyrnumenn verða til reynslu hjá ÍBV um helgina, markvörðurinn Kenneth Stenild Nielsen og framherjinn Christian Olsen. Þeir leika væntanlega með ÍBV á morgun þegar liðið mætir ÍA í Akraneshöllinni í leik um 5. sætið á Fótbolta.net mótinu. Frá þessu er greint á vef Eyjafrétta.
Olsen er 29 ára gamall og hefur leikið með Skive í dönsku B-deildinni og áður með úrvalsdeildarliðunum Viborg og Midtjylland.
Nielsen er 25 ára gamall og hefur verið í röðum úrvalsdeildarliðsins Horsens frá 2009, sem varamarkvörður. Hann lék áður með AaB og yngri landsliðum Danmerkur.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






