Dauðafæri Leiknis í súginn (myndskeið)
Leiknismenn úr Reykjavík fengu dauðafæri til að komast í undanúrslit Reykjavíkurmótsins á kostnað KR í dag þegar þeir gerðu 1:1 jafntefli við Fram. Færið kom í uppbótartíma en fór í súginn. Fram vann því riðilinn með 10 stig en Leiknir hlaut 7.
Leiknir mun nær örugglega ekki komast áfram því í síðasta leik A-riðilsins er KR að vinna ÍR 7:0 en með sigri kemst KR upp í 2. sætið.
Samuel Hewson kom Fram yfir gegn Leikni með marki úr víti en Vigfús Arnar Jósepsson jafnaði metin með fallegu marki. Almarr Ormarsson fékk svo rautt spjald korteri fyrir leikslok og Leiknismenn voru hársbreidd frá því að nýta sér það til sigurs í lokin. Óttar Bjarni Guðmundsson fékk þá boltann í markteignum eftir mikinn atgang en tókst einhvern veginn að skjóta framhjá.
Hægt er að sjá helstu atvikin úr leiknum með því að smella hér.






