Fann leikgleðina aftur á Íslandi

Samuel Tillen með fyrirliðabandið í leik með Fram. stækka

Samuel Tillen með fyrirliðabandið í leik með Fram. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Samuel Tillen er ekki þekktasti knattspyrnumaður sem komið hefur frá Englandi en er orðinn kunnuglegt nafn hér við ysta haf. Eftir nokkurra ára dvöl hérlendis hefur Tillen leikið 79 leiki fyrir Fram í efstu deild og er nú að undirbúa sig undir fimmta keppnistímabilið á Íslandi. Morgunblaðið tók Tillen tali en hann hefur frá ýmsu að segja eftir að hafa reynt fyrir sér hjá stórliði Chelsea, fengið leiða á ensku knattspyrnunni og endurheimt leikgleðina á Íslandi.

„Ég spilaði með Ólafi Inga Skúlasyni hjá Brentford og héldum við sambandi eftir að hann fór til Helsingborgar í Svíþjóð. Þegar samningur minn rann út þá var ég orðinn leiður á fótboltanum í Englandi. Þegar tækifærið myndaðist á því að fara til Fram þá kom ég til landsins og lék æfingaleik á Akranesi. Ég hef verið hér síðan,“ rifjaði Tillen upp og bætti því við að hann hafi endurheimt leikgleðina hjá Fram.

Skemmtilegri fótbolti en í neðri deildum á Englandi

„Sá leikur var fyrsti leikurinn sem ég hafði gaman af í nokkur ár. Við reyndum að spila boltanum úr öftustu línu og það er eitthvað sem ég hafði ekki gert í tvö og hálft ár eða frá því ég var hjá Chelsea. Ég naut þess virkilega. Mér finnst íslenska deildin vera sterk og hér eru góðir leikmenn sem sést til dæmis á því að Hörður Björgvin Magnússon samdi við Juventus á dögunum. Auk þess hefur KR gengið vel í Evrópuleikjum og það er gott fyrir orðspor deildarinnar. Það var ekki neitt sjokk fyrir mig að spila í þessari deild og ég hef notið þess að spila hérna. Annars hefði ég ekki dvalið hérna allan þennan tíma.

Ég hafði engar fyrirfram gefnar væntingar til deildarinnar en reiknaði með að hún væri í ágætum gæðaflokki. Hér eru menn alla vega að reyna að spila skemmtilegri fótbolta en í neðri deildunum í Englandi. Hér er aðstaða til æfinga auk þess betri heldur en hjá flestum neðrideildarliðum í Englandi myndi ég halda. Aðstaðan hjá Fram er mun betri en hjá Brentford þegar ég var þar og ég minnist þess að þegar Joe bróðir minn spilaði með MK Dons þá æfðu þeir stundum í almenningsgarði. Þar af leiðandi tel ég að Ísland geti verið ágætur valkostur fyrir unga enska leikmenn auk þess sem hér er yndislegt að búa,“ sagði Sam en Joe þessi elti bróður sinn til Fram og leikur nú með Selfyssingum.

Ítarlegt viðtal við Samuel Tillen er að finna í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag þar sem hann segir meðal annars frá samskiptum sínum við John Terry og Frank Lampard þegar hann var á samningi hjá Chelsea.

Samuel Tillen í Fram-heimilinu í Safamýri.

Samuel Tillen í Fram-heimilinu í Safamýri. mbl.is/Golli

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Pepsi-deildin — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí


finnur.is