Íþróttir
|
Pepsi-deildin
| mbl
| 4.2.2012
| 12:05
Fyrirliði Breiðabliks til ÍA
Miðvörðurinn Kári Ársælsson er genginn í raðir ÍA frá Breiðabliki og skrifaði undir samning til tveggja ára við félagið.
Kári, sem er 26 ára gamall, hefur verið fyrirliði Breiðabliks síðustu ár en liðið varð bikarmeistari 2009 og Íslandsmeistari 2010 í fyrsta sinn.
Á síðustu leiktíð lék Kári 18 leiki af 22 í deildinni og skoraði 2 mörk en Breiðablik stóð ekki undir væntingum og endaði í 6. sæti.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






