Íþróttir
|
Pepsi-deildin
| mbl
| 4.2.2012
| 22:44
| Uppfært
5.2.2012
17:28
Rakel byrjar vel með Blikum
Rakel Hönnudóttir, landsliðskona í knattspyrnu, byrjaði vel í fyrsta mótsleik sínum með Breiðabliki því hún skoraði bæði mörk Kópavogsliðsins þegar það vann FH, 2:0, í Fífunni í dag, í sínum fyrsta leik í Faxaflóamótinu.
Rakel kom til liðs við Breiðablik frá Þór/KA í vetur og hún gerði bæði mörkin í seinni hálfleiknum.
Stjarnan er með sex stig eftir tvo leiki í mótinu, FH sex stig eftir þrjá leiki, Breiðablik þrjú stig eftir einn leik, en ÍBV og Afturelding eru bæði án stiga eftir tvo leiki.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






