Íþróttir
|
Pepsi-deildin
| mbl
| 5.2.2012
| 22:17
| Uppfært
22:32
Valur fór létt með KR (myndskeið)
Valur vann auðveldan sigur á KR, 5:0, í kvöld þegar liðin mættust í Reykjavíkurmóti kvenna í knattspyrnu í Egilshöllinni.
Elín Metta Jensen skoraði þrjú markanna, eitt úr vítaspyrnu sem hún krækti í sjálf. Rakel Logadóttir fyrirliði skoraði hin tvö og lagði auk þess eitt upp fyrir Elínu.
Elín Metta, sem er 16 ára gömul, hefur skorað sex af tíu mörkum Vals í þremur fyrstu leikjum mótsins.
Valskonur hafa þar með unnið alla þrjá leiki sína og ljóst er að þær heyja einvígi við Fylki um Reykjavíkurmeistaratitilinn.
SportTV sýndi leikinn beint og á heimasíðunni þar má sjá mörkin úr leiknum. Þau eru á meðfylgjandi slóð:
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






