Íþróttir
|
Pepsi-deildin
| mbl
| 6.2.2012
| 14:19
Sandnes samdi við Selfyssinga
Norski knattspyrnumaðurinn Robert Sandnes hefur skrifað undir tveggja ára samning við Selfyssinga, nýliðana í úrvalsdeild karla, en hann kemur til þeirra frá Aalesund í Noregi. Þetta kemur fram á fréttavef Sunnlenska í dag.
Sandnes hefur verið í röðum Aalesund í eitt ár en lék áður í neðri deildunum í Noregi. Hann er 20 ára gamall og spilar ýmist á vinstri kantinum eða á miðjunni. Hann var til reynslu hjá Selfyssingum í janúar og lék þá með þeim æfingaleik gegn ÍBV þar sem hann skoraði mark.
Þá kemur fram að slóvenski leikmaðurinn Peter Klancar komi ekki aftur til Selfyssinga eins og til stóð en hann lék með þeim seinni hluta síðasta tímabils.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






