Gefur sér góðan tíma
Hólmfríður Magnúsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, æfir með bikarmeisturum Vals um þessar mundir og ætlar að gefa sér góðan tíma til að velta fyrir sér hver verður næsti áfangastaður hjá henni.
Hólmfríður var samningsbundin Philadelphia Independence en er laus allra mála eftir að bandaríska atvinnumannadeildin var blásin af. Hólmfríður fór til Noregs um liðna helgi ásamt Katrínu Ómarsdóttur, sem einnig ætlaði að spila með Philadelphia, og spiluðu þær æfingaleik með norska úrvalsdeildarliðinu Arnar-Björnar.
„Ég fékk tölvupóst frá umboðsmanni mínum í gærkvöldi um að það væri mikill áhugi hjá félaginu að fá mig til félagsins. Ég er samt ekki búin að fá neinn samning inn á borð til mín en býst við því að fá tilboð á næstu dögum,“ sagði Hólmfríður í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi.
Hólmfríður segir að svo geti hæglega farið að hún muni ekki taka ákvörðun fyrr en að loknum Algarve-bikarnum, sem lýkur í mars. Félagaskiptaglugginn vegna Noregs og Svíþjóðar lokar ekki fyrr en 31. mars.
Nánar í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.






