Næstlengsta tímabilið í fótboltanum frá upphafi
Íslandsmótið í knattspyrnu á komandi sumri verður það næstlengsta í sögunni. Fyrsti leikdagur í úrvalsdeild karla, Pepsi-deildinni, er 6. maí og lokaumferðin er leikin 29. september, samkvæmt þeirri dagskrá sem núna liggur fyrir.
Mótið stendur því í 147 daga, nákvæmlega 21 viku, og verður sex dögum styttra en Íslandsmótið á síðasta ári, 2011.
Þá var leikið í heila fimm mánuði í fyrsta skipti, frá 2. maí til 1. október, eða í 153 daga. Rétt tæpar 22 vikur.
Eins og mótinu er stillt upp núna verða það KR og Stjarnan sem mætast í opnunarleik Íslandsmótsins á KR-vellinum sunnudaginn 6. maí, klukkan 16.00.
Selfoss og ÍBV mætast í Suðurlandsslag klukkan 18 og síðan eru þrír leikir klukkan 19.15, FH – Grindavík, Breiðablik – ÍA og Fylkir – Keflavík. Fyrstu umferðinni lýkur með Reykjavíkurslag Fram og Vals á Laugardalsvellinum mánudagskvöldið 7. maí.
Júní svipaður og í fyrra
Lengingin á mótinu á síðasta ári var tilkomin vegna þátttöku 21-árs landsliðsins í úrslitakeppni Evrópumótsins. Þá var gert hlé á deildinni í tæpar þrjár vikur í júní og aðeins leiknir 13 leikir í þeim mánuði.
Þegar drög sumarsins eru skoðuð eins og þau liggja fyrir núna kemur í ljós að ekki er miklu breytt frá síðasta ári. Mótið hefst fjórum dögum síðar og lýkur tveimur dögum fyrr. Júnímánuður verður áfram sá rólegasti og þá verður aðeins leikið einum leik meira en í fyrra, en einungis 14 leikir eru fyrirhugaðir í deildinni í júní. Tveggja vikna hlé er gert frá 31. maí til 14. júní, í kjölfarið á hefðbundinni maítörn en sex umferðir fara fram frá 6. maí til 31. maí. Þetta er kaflinn sem sumir vilja kalla „hraðmótið“.
Löng mót fyrir 40 árum
Ef við setjum lengd mótsins í sögulegt samhengi, þá hefur það lengst nokkuð á síðustu árum, eftir að hafa skroppið saman um skeið.
Fyrir 40 árum eða svo var ekkert tiltökumál að byrja mótið snemma í maí og spila frameftir september. Þá var einfaldlega leikið á möl, mikið til á gamla Melavellinum, á fyrstu og síðustu vikum mótsins. Til dæmis var Íslandsmótið árið 1970, þegar átta lið léku í efstu deild í fyrsta skipti, leikið á 128 dögum og lauk 27. september.
Lengsta mót aldarinnar 1988
Eftir því sem aldamótin nálguðust var mótið stytt og þétt. Lengsta mót 20. aldarinnar var þó árið 1988, leikið á 133 dögum frá 15. maí til 24. september. Það stysta á síðari árum var hins vegar leikið fyrir nákvæmlega 20 árum, 1992, en þá var byrjað 23. maí og endað 13. september og aðeins leikið í 114 daga.
Frá 2000 til 2007 var mótið leikið á 124-133 dögum en var síðan lengt þegar liðunum var fjölgað í tólf frá og með 2008. Fjögur fyrstu mótin eftir fjölgunina voru spiluð á 139-141 degi en síðan kom stóra stökkið á síðasta ári þegar Íslandsmótið var lengt um hálfan mánuð frá árinu 2010.
Nú er aðeins bakkað með það um sex daga, enda sýndi það sig á síðasta ári að íslenskir grasvellir eru farnir að þola allt að fimm mánaða notkun á ári.
Ef litið er á hinar þrjár landsdeildirnar í fótboltanum í ár, þá hefst Pepsi-deild kvenna 13. maí og lýkur 8. september. Keppni í 1. deild karla hefst 12. maí og lýkur 22. september og keppni í 2. deild karla hefst 11. maí og lýkur 22. september.






