Stjarnan með sigurinn í höndunum

Stjarnan hafði betur gegn Breiðabliki. stækka

Stjarnan hafði betur gegn Breiðabliki. mbl.is/Ernir

Íslandsmeistarar Stjörnunnar sigruðu Breiðablik, 2:0, í Faxaflóamóti kvenna í knattspyrnu í gærkvöld, þegar liðin mættust í Kórnum í Kópavogi, og þar með getur fátt komið í veg fyrir sigur Garðabæjarliðsins í mótinu.

Edda María Birgisdóttir skoraði fyrra markið á 37. mínútu og Harpa Þorsteinsdóttir það síðara á 80. mínútu.

Stjarnan er með 9 stig og markatöluna 15:0 en FH er með 6 stig og markatöluna 9:4, þannig að FH þarf að vinna stórsigur í lokaleik liðanna í mótinu til að ná efsta sætinu í sínar hendur. Breiðablik er með 3 stig eftir tvo leiki og markatöluna 2:2 og þyrfti tvo risasigra gegn Aftureldingu og ÍBV til að vinna mótið á markatölu, ef FH vinnur Stjörnuna.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Pepsi-deildin — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí


finnur.is