Dofri kom KR í úrslitaleikinn

Dofri Snorrason skoraði sigurmark KR. stækka

Dofri Snorrason skoraði sigurmark KR. mbl.is/Ómar

KR sigraði Fylki, 1:0, í undanúrslitum Reykjavíkurmóts karla í knattspyrnu í Egilshöllinni í kvöld og þar með er ljóst að KR og Fram mætast í úrslitaleik mótsins á sama stað á mánudagskvöldið.

Dofri Snorrason skoraði sigurmarkið á 42. mínútu leiksins eftir sendingu Atla Sigurjónssonar í gegnum miðja vörn Fylkis.

KR fékk vítaspyrnu á 60. mínútu en Kjartan Henry Finnbogason skaut hátt yfir mark Fylkismanna.

Engu munaði að Bjarni Þórður Halldórsson, markvörður Fylkis, næði að jafna metin í uppbótartíma leiksins þegar hann átti hættulegan skalla eftir hornspyrnu en KR-ingar náðu að bjarga við marklínuna.

Fram vann Þrótt í vítaspyrnukeppni fyrr í kvöld eftir að liðin skildu jöfn, 1:1, eins og áður hefur komið fram.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Pepsi-deildin — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí


finnur.is