Fram í úrslit eftir vítakeppni
Framarar leika til úrslita um Reykjavíkurmeistaratitil karla í knattspyrnu eftir að þeir lögðu Þróttara í vítaspyrnukeppni í Egilshöllinni í kvöld eftir að liðin skildu jöfn, 1:1, eftir 90 mínútna leik.
Fram var með nokkra yfirburði lengst af og Steven Lennon skoraði á 26. mínútu, 1:0. Ekki tókst þeim bláklæddu að bæta við mörkum þrátt fyrir ágæt færi og á 84. míútu jafnaði varamaðurinn Ólafur Magnússon fyrir Þróttara.
Ekki er framlengt í mótinu, heldur farið beint í vítaspyrnukeppni. Þar náði Þróttur undirtökunum þegar Ögmundur Ólafsson varði frá Samuel Hewson. Það stóð ekki lengi, Þróttarinn Daði Bergsson skaut framhjá og félagi hans, Oddur Björnsson, skaut í þverslá. Steven Lennon innsiglaði síðan sigur Fram í vítaspyrnukeppninni, 4:2, þegar hann skoraði úr fimmtu spyrnu Safamýrarliðsins.
Leikur KR og Fylkis er að hefjast en sigurliðið í þeirri viðureign mætir Fram í úrslitaleiknum á mánudagskvöldið.






