ÍBV fékk háttvísis- og grasrótarverðlaun

ÍBV var prúðasta lið Pepsi-deildar kvenna í knattspyrnu árið 2011. stækka

ÍBV var prúðasta lið Pepsi-deildar kvenna í knattspyrnu árið 2011. Ernir Eyjólfsson

Ársþing KSÍ sem nú fer fram í 66. skipti var sett í morgun klukkan 11.00 og stendur enn yfir. Þar hlaut ÍBV háttvísisverðlaunin í Pepsi-deild kvenna. Einnig voru HK/Víkingur og Völsungur heiðruð fyrir háttvísi í 1. deild kvenna.

Grasrótarverðlaun sambandsins eru í þremur flokkum og eru þessir flokkar ákveðnir af evrópska knattspyrnusambandinu, UEFA. Hvöt fékk verðlaun fyrir grasrótarviðburð ársins en félagið stóð fyrir Smábæjarleikunum. ÍBV fékk verðlaun fyrir Pæjumótið í flokknum grasrótarviðburður stúlkna. Að lokum fékk Víkingur R. verðlaun fyrir grasrótarviðburð fatlaðra.  

Valur ÍBV og BÍ/Bolungarvík fengu Drago-stytturnar en þær hljóta þau lið í tveimur efstu deildum karla sem sýna prúðmannlegastan leik þegar mið er tekið af gulum og rauðum spjöldum dómaranna. Þá fengu Reynir Sandgerði og KFG viðurkenningu fyrir prúðmannlegan leik í 2. og 3. deild karla en mið er tekið af sömu forsendum, gulu og rauðu spjöldunum sem liðin safna og er takmarkið að sjálfsögðu að safna sem fæstum.

Þá hlaut Óskar Ófeigur Jónsson, blaðamaður á íþróttadeild 365 miðla, fjölmiðlaverðalaunin fyrir árið 2011. Í tilkynningu segir að Óskar hafi allta tíð í sínu starfi notað tölfræði til að krydda umfjöllun og tekist það vel. Þá hafi hann um árabil fjallað um knattspyrnu og jafnan haldið umfjöllun um kvennaknattspyrnu mjög á lofti.

Fleiri fréttir af ársþingi KSÍ birtast síðar í dag á mbl.is. Meðal annars verður kosið í stjórn sambandsins og fjallað og kosið um breytingatillögur.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Pepsi-deildin — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí


finnur.is