Íþróttir
|
Pepsi-deildin
| Morgunblaðið
| 13.2.2012
| 7:07
Ásgeir Börkur á reynslu
Ásgeir Börkur Ásgeirsson, knattspyrnumaður úr Fylki, er á leið til sænska úrvalsdeildarfélagsins Åtvidaberg á reynslu í dag. Hann verður þar við æfingar fram á fimmtudag að því er segir á vefsíðunni fotbolti.net.
Ásgeir er þó samningsbundinn Fylki til næstu tveggja ára en hann hefur aðeins leikið með Árbæjarliðinu og Selfyssingum á sínum ferli.
Åtvidaberg tryggði sér þátttökurétt í efstu deild síðasta sumar með því að vinna 1. deildina. omt@mbl.is
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






