Íþróttir
|
Pepsi-deildin
| mbl
| 14.2.2012
| 13:51
| Uppfært
14:11
FH og Sverrir semja um starfslok
Sverrir Garðarsson og stjórn knattspyrnudeildar FH hafa náð samkomulagi um starfslok Sverris hjá FH. Þetta kemur fram á vef stuðningsmanna FH, fhingar-net.
Sverrir sneri aftur til FH árið 2009 sem lánsmaður frá Sundsvall og samdi síðan við sitt gamla félag. Hann lék átta leiki með liðinu 2009 en síðustu tvö tímabil lék hann engan leik með liðinu í Pepsi-deildinni. Meiðsli settu þar strik í reikninginn en fyrst voru það höfuðmeiðsli og síðan hnémeiðsli.
Sverrir er 28 ára gamall og á baki 56 leiki með FH í efstu deild og einn leik með íslenska A-landsliðinu sem hann lék gegn Dönum á Parken 2007.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






