Lennon lék sama leik og Lolli í Val 1941
Steven Lennon sækir að Gunnari Þór Gunnarssyni í viðureign Fram og KR í gærkvöld. mbl.is/Kristinn Ingvarsson
Steven Lennon framherji Fram er fyrsti leikmaðurinn sem skorar fimm mörk fyrir íslenskt félag í leik á móti á KR frá því Ellert Sölvason, Lolli í Val, afrekaði það í 9:1 sigri Vals gegn KR árið 1941. Sá leikur var í Walters-keppninni sem var haustmót Reykjavíkurfélaganna. Þetta kemur fram á vef KR í dag.
Skotinn Steven Lennon skoraði öll fimm mörk Framara í 5:0 sigri liðsins gegn Íslands- og bikarmeisturum KR í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins.
Að því er fram kemur á vef KR skoraði Þjóðverjinn Uwe Seeler fimm sinnum þegar KR tapaði, 10:0, fyrir vestur-þýska A-landsliðinu 9. ágúst 1960 og Sovétmaðurinn Sokolov setti fimm mörk í 13:2 tapi KR fyrir Lokomotiv frá Moskvu 25. júlí 1956.






