Bandarískur markvörður í Þór/KA

Þór/KA fær bandarískan markvörð. stækka

Þór/KA fær bandarískan markvörð. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Kvennalið Þórs/KA í knattspyrnu fær til sín bandaríska markvörðinn Chantel Nicole Jones fyrir komandi keppnistímabil en hún er væntanleg til Akureyrar í apríl, samkvæmt heimasíðu Þórs.

Jones er 23 ára gömul og hefur leikið með liði Virginíu-háskóla undanfarin ár og m.a. sett ýmis met í að halda marki sínu hreinu. Þá hefur hún verið í landsliðshópum Bandaríkjanna í öllum yngri aldursflokkum, síðast í U23 ára liðinu, og var í hópi bandaríska liðsins sem varð heimsmeistari U20 ára fyrir fjórum árum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Pepsi-deildin — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí


finnur.is