Guðmundur til liðs við Hauka

Guðmundur Sævarsson í leik með FH gegn Stjörnunni. stækka

Guðmundur Sævarsson í leik með FH gegn Stjörnunni. mbl.is/Sigurgeir Sigurðsson

Knattspyrnumaðurinn Guðmundur Sævarsson er genginn í raðir fyrstudeildarliðs Hauka. Guðmundur skrifaði í gær undir eins árs samning við Hafnarfjarðarliðið en samningur hans við FH rann út um áramótin.

Guðmundur er 34 ára gamall og hefur verið einn besti hægri bakvörður landsins mörg undanfarin ár. Hann hefur leikið stórt hlutverk í sigursælu liði FH síðasta áratuginn en Guðmundur hefur leikið allan sinn feril með FH-ingum og státar af fimm Íslandsmeistaratitlum með félaginu og tveimur bikarmeistaratitlum.

Hann hefur leikið samtals 165 leiki í efstu deild og í þeim skorað 15 mörk. Síðastliðið sumar lék Guðmundur 12 leiki FH-liðsins í Pepsi-deildinni og skoraði í þeim eitt mark.

Hjá Haukum hittir Guðmundur fyrir þjálfarann Ólaf Jóhannesson en bakvörðurinn knái lék undir stjórn Ólafs hjá FH í nokkur ár. Ólafur tók við þjálfun Haukaliðsins í vetur eftir að hafa stýrt íslenska landsliðinu síðustu fjögur árin.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Pepsi-deildin — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí


finnur.is