Íþróttir
|
Pepsi-deildin
| mbl
| 15.2.2012
| 8:15
Stjarnan rauf einveldi Blika
Stjarnan tryggði sér í gærkvöld sigur í Faxaflóamóti kvenna í knattspyrnu með því að sigra FH, 5:1, í uppgjöri tveggja efstu liðanna í Kórnum í Kópavogi.
Þar með er einveldi Breiðabliks í keppninni rofið en Kópavogsliðið hafði unnið hana í þau sjö skipti sem mótið hefur verið haldið, frá 2005.
Stjarnan fékk 12 stig, FH 6, Breiðablik er með 3 stig, ÍBV 3 og Afturelding ekkert en Blikar eiga eftir að mæta bæði ÍBV og Aftureldingu.
Harpa Þorsteinsdóttir skoraði þrennu fyrir Stjörnuna í gærkvöld og þær Anna Björk Kristjánsdóttir og Ásgerður Stefanía Baldursdóttir gerðu eitt mark hvor fyrir Íslandsmeistarana. Aldís Kara Lúðvíksdóttir skoraði fyrir FH.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






