Matthías á leið til Noregs?
Matthías Vilhjálmsson, fyrirliði FH og landsliðsmaður í knattspyrnu, er á leiðinni til Noregs til að semja við B-deildarfélagið Start, samkvæmt frétt á Fótbolta.net í dag.
Þar er sagt að hann sé í flugi á leiðinni þangað og muni gangast undir læknisskoðun og skrifa undir samning síðar í dag. Hann verði í láni hjá Start frá FH og norska félagið geti keypt hann að lánstímanum liðnum.
Ekki er fjallað um þetta ennþá á heimasíðum FH eða Start en á twitterfærslu frá FH segir að ekkert sé staðfest ennþá með Matthías.
Start féll úr norsku úrvalsdeildinni síðasta haust en félagið hefur flakkað nokkuð á milli deilda undanfarin ár. Liðið er frá Kristiansand, syðsta bæ Noregs. Fjórir Íslendingar hafa spilað með liðinu, Haraldur Freyr Guðmundsson Keflvíkingur var þar síðast á lokaspretti síðasta tímabils, og Guðjón Þórðarson þjálfaði liðið í nokkra mánuði árið 2002.






